„Týndi lyklunum en sá gróða með því tapi“

Námsmaðurinn Baldvin Ósmann hefur gripið til þess ráðs að flytja inn Freedom Keychain GPS 2000 til landsins. Lyklakippan virkar með öllum vinsælustu GPS hugbúnaði og er mjög þægileg í notkun. Einnig er hægt að tengja hana við fartölvu sem og snjallsíma. „Ég er kominn með nóg af andvökunóttum röltandi um bæinn drukkinn að leita að lyklunum mínum og finna svo svefnpláss hjá einhverjum vin eða kunningja þegar þeir finnast ekki. Síðasta helgi kostaði mig hátt í 30 þúsund krónur. Ég þurfti að kalla út lásasmið heim og láta svo draga bílinn minn niðrí umboð til þess að láta smíða nýjan lykil í hann. Ég sé hag fyrir alla að eiga svona lyklakippu. Þar að auki kostar kippan ekki nema 11 þúsund krónur komin til landsins.“ Sagði Baldvin í viðtali við fréttamann.
Baldvin hyggst opna vefsíðuna thinkbeforeyoudrink.is þar sem hann mun selja lyklakippuna umræddu og annan varning sem kann að koma að góðum notum fyrir drykkju helgarinnar, sem og virka daga. „Ég vil innleiða nýja hugsun í drykkjumenningu þjóðarinnar. Ef ég tek mig sem dæmi þá hefði ég getað nýtt þann pening sem ég hef glatað í týnda hluti á næturlífinu, í það að fara til Hawaii í mánuð. Þetta er glatað! Já ég segi GLATAÐ!“ Bætti Baldvin við í lok viðtals. Hann vildi þó koma þökkum til vina og kunningja sem hafa hjálpað honum í gegnum súrt og sætt síðastliðin ár.
Ég vildi að það væri góðæri
Lesendabréf
Agnar Magnússon skrifa:
Ég græt stundum góðærið. Þótt það þyki ekki flott. Enda keppist fólk nú við að fordæma bruðlið og vitleysisganginn sem heltók okkur öll fyrir svo stuttu síðan. „Uss, ég keypti nú engan flatskjá,” segir það, og þykist eitthvað betra en við hin. Auðvitað skammast ég mín fyrir flatskjáinn inni í svefnherbergi (enda er hann best falinn þar), ég fæst þó ekki til að viðurkenna að hann einn hafi sett samfélagið á hliðina.
Ég vildi að það væri enn þá góðæri. Þegar ég rifja upp liðna tíma þegar peningarnir virtust spretta á trjánum, man ég eftir hlutum sem ég ætlaði að framkvæma en kom bara ekki í verk. Hélt sjálfsagt að góðærið myndi endast að eilífu. Ég ætlaði til dæmis alltaf að kaupa efri skápa í eldhúsið við tækifæri, en það verður varla úr þessu. Innréttingaverslunin er farin á hausinn og einhver nytjamarkaðurinn sprottinn upp í húsnæði verslunarinnar.
Ég ætlaði líka alltaf að fá einhvern til að koma og þrífa og laga til heima hjá mér einu sinni í viku, eins og fínu frúrnar. Þá ætlaði ég að halda glæsileg matarboð í skínandi hreina húsinu mínu og bjóða gestum. Sennilega verður einhver bið á að gestirnir mínir komi í hreint hús en sambýlismaður minn hann Kristján er að vinna í þessu. Eins ætlaði ég að ferðast svo mikið til útlanda. Þvælast um stórborgir, drekka latte á hverju götuhorni og borða úti. Nú hefur kaffifrappóinn, sem mér þykir svo góður, hækkað hátt í fimmhundruðkall. Ég græt það því að hafa ekki drukkið fleiri í góðærinu.
Ég vildi að ég hefði látið Kristján smíða suðursvalir á húsið í góðærinu. Ég vildi að ég hefði keypt appelsínugulu espressóvélina sem mig langaði svo í. Ég vildi að ég hefði farið oftar í bíó, ég vildi að ég hefði keypt rosalega marga hælaskó. Ég vildi að einhver hefði opnað kaffihús í Hlíðunum rétt hjá Þorra og Ingó í góðærinu og seldi frappóinn á viðráðanlegu verði. Ég vildi að Miklabrautin hefði verið drifin í stokk í góðærinu. Ég vildi að hringvegurinn hefði verið tvöfaldaður í góðærinu. Ég vildi að það hefði verið lögð upphituð hraðbraut yfir Sprengisand í góðærinu. Ég vildi að það hefði verið tekið til í inntakinu mínu í góðærinu!
„Uss, hann ætti að skammast sín!” fussar sjálfsagt einhver og hefur rétt fyrir sér. En ég græt þá bara góðærið í hljóði. Agnar setur á sig stút, yfir og út.
Stunginn í hálsinn í vinnunni
Fréttir bárust af því að slagsmál brutust út á vinnustað í Skútuvoginum laust fyrir hádegi í dag. Talið er að einn starfsmaður að nafni Agnar Magnússon, hafi slastast í árásinni en árásarmaðurinn að nafni Maríanna Þorgilsdóttir, hafi stungið fyrr nefndan í hálsinn með gaffli. Sjónvarvottar segja að árásin var gerð að tilefnislausu en talið er að árásamaðurinn eigi við geðræn vandamál að stríð enda búin að vinna við mjög sveiflaðar línur gegnum árin.
Agnar útskýrði árásina mjög sláandi og er enn þá í sjokki. „Ég átti engan vegin von á þessu frá samstarfskonu minni. Hún hótaði mér um daginn að stinga mig af því að ég var fyrir en ég hélt bara að hún væri að grínast. Svo núna í dag þá biður hún mig um að nudda sig og ég hló og neitaði því eins og ég geri venjulega við aðra og hélt áfram að vinna. Hún rýkur þá yfir borðið, öskrar helvítis dóni og rekur gaffal í hálsinn á mér. Ég sem hef ekki gert flugu mein og er algjör engill enda vinn ég í ljósinu“.
Agnar er ekki í lífshættu en tekur glaður á móti súkkulaði, frostpinnum og blómum á Landspítalanum í dag. Ekki náðist tal af Maríönnu þar sem hún situr enn í gæsluvarðhaldi eftir atvik dagsins. Maðurinn hennar vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
DEITAR BÆÐI PÓKERSPILARA OG SJÓNVARPSSTJÖRNU
Á aðeins einni viku hefur ljóshærða þokkadísin Agnes Marinósdóttir, sem er betur þekkt sem Gnesa, farið á stefnumót með bæði Árna Ragnari Steindórssyni og Auðunni Blöndal. Hún hefur haft það huggulegt með folunum á mismunandi stöðum á Sauðárkróki en hún hefur líka sést með þeim báðum á knæpum Reykjavíkurborgar undanfarnar vikur.
Árni Ragnar bauð Agnesi með sér í helgarferð til Sauðárkróks og svo á veitingastaðinn Ólafshús um kvöldið. Einnig hefur sést til parsins í íbúð hans í Flúðaseli sem er betur þekkt sem Casino 88. Auddi valdi í staðinn að heilla stúlkuna upp úr skónum í íbúð sinni í Álfkonuhvarfinu.
Nú er spurning hvort Agnes velji hinn bólfima og hættulega pókerspilara Árna Ragnar sem hélt framhjá með barnapíunni sinni ungur að árum eða hinn hæfileikaríka skemmtikraft Auðunn Blöndal sem hefur deitað þónokkuð margar fyrirsætur.
Sjálf hefur Agnes átt í ástarsambandi við her af frægum mönnum á borð við Justin Timberlake, Matt Dillon, Jared Leto og nú nýlega fyrirsætuna Paul Sculfor.
Nýjasta múndering Heiðu Carnival sögð tískuslys
Heiða „Carnival“ fær viðurnefnið Carnival í breskum slúðurblöðum eftir að hafa mætt í hálfgerðum tötrum á frumsýningu nýjustu myndar sinnar „The Carnival Prinsess“ í Bretlandi í gær.
Kjóllinn sem minnir um margt á klæði Hollenskra port-kvenna til forna var að mestu opinn að framan og þykir sérstaklega óvenjulegt að klæðast kjól sem sýnir bringu og maga með þeim hætt. Þótti líka litasamsetningin og lakkrísinn í nefinu óskiljanlegur gjörningur.
Mikil umræða sem spannst í kringum holdafar leikkonunnar eftir að hún kom fram á kvikmyndahátíðinni í FB í síðustu viku virðist miðað við þetta útspil ekki hafa haft nokkur áhrif á hana.
Varað við Joði í sojadrykk

Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá Viðvörunarkefi Evrópu. Varað er við japönskum sojadrykk, BANZAI! Soy Milk, sem inniheldur alltof mikið af Joði.
Ástæða Joðmagnsins er sú að sjaldgæft ensími er að finna í þessum árgangi af sojabaunum. Ensímið Elías hefur þá virkni á sojabaunir að þær stækki óvenjulega mikið, verði ílangar og Joð eykst til muna. Japanir gripu því gæsina meðan hún gafst og náðu að auka framleiðslugetu sína um helming.
Matvælastofnun segir að drykkurinn hefur ekki fundist hérlendis en sjaldan fellur baunin langt frá baununum og fleiri tonn af honum hafi verið gerður upptækur í Árósum í Danmörku. Vitað er um að tólf einstaklingar hafi veikst alvarlega af völdum drykksins. Joð í miklum mæli hefur áhrif á skjaldkirtilinn og þar með á hormóna, mormóna og efnaskipti líkamans.
Getur folf valdið heyrnaskaða?
Ingólfur Dan Þórisson hefur varað við því að folf geti valdið heyrnarskaða. Hann hvetur folfara sem nota nýja tegund af folfdiskum sem eru með þunnan svifflöt úr títaníum og carbon trefjum, sem eykur vegalengdina sem folfdiskurinn getur ferðast, að nota eyrnatappa.
Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins að eyrnasérfræðinga gruni að hvellurinn sem heyrist þegar diskurinn brýtur hljóðmúrinn hafi skaðað heyrina hjá Ingólfi, sem nýlega leitaði sér læknisaðstoðar eftir opna meistarmótið í folfi í Þýskalandi nú á dögunum.
Greint er frá þessu í vísindaritinu British Medical Journal.
Maðurinn sem um ræðir lék folf þrisvar í viku í eitt og hálf ár með King Cobra LD svifdisk úr títaníum og hertum carbon trefjum. Hann sagði við lækna að hljóðið sem heyrðist þegar hann henti disknum væri ekki ósvipað og geimskoti.
Hann ákvað á endanum að hætta að nota diskinn, en þá hafði hann þegar orðið fyrir heyrnarskaða.
Læknar við háskólasjúkrahúsin í Norfolk og Norwich gerðu nokkrar rannsóknir á Ingólfi. Hann var með suð í eyrunum auk þess sem hann hafði misst heyrn á hægra eyra.
Niðurstöður læknanna leiddu í ljós að vandi mannsins var svipaður og hjá þeim sem hafa verið í miklum hávaða.